Thursday, November 15, 2007

Ég endurnýjaði kynnin við skannan minn í gær og hér eru nokkrar myndir úr fortíðinni sem mér fannst skemmtilegar. Þær ættu að vera nokkurnvegin í tímaröð...


Ég var alveg gáttuð, mér finnst mamma svo falleg þarna... og öll fötin sem hún var í á þessum tíma voru svo glæsileg.

Mamma á Ítalíu
Frá þeim tímum þegar mamma var í leyniþjónustunni. Þarna er hún á Ítalíu.
Hér eru pabbi og Anna Lára (stóra systir) litla álfabarnið í rassabaði 1984.


Börn

Stundum er nammiskálin barnsins eini vinur.
Mamma hótaði að nota þessa sem jólakort einu sinni og senda öllum ættingjunum ef við myndum ekki taka til í herberginu.


Anna Lára, ég og Arna Björk litla frænka.

Uppáhaldsstaðurinn minn þegar ég var lítil. Ég sat oft þarna í langan tíma 'lesandi' Andrésar andar blöð.


Flepp!

1 comment:

Anonymous said...

skemmtilegar myndir, viltist nostalgíu við að skoða þær :) og ég mundi eftir Maríubakkanum...