Tuesday, October 30, 2007
Monday, October 29, 2007
Eftir að hafa loksins klárað In Rainbows dóminn get ég leyft mér aðeins að setja hann upp á hillu og byrja að hlusta á aðra tónlist. Held ég þurfi að gefa honum meiri tíma.
Það var eitthvað vesen með youtube og blogger er að vera kunta og leyfir mér ekki að gera bil á milli efnisgreina, en hér er dómurinn í þægilegra formi: http://rjominn.is/reviews/show/558/
Sunday, October 28, 2007
Ég heyrði eitt eða tvö lög með tom Waits þegar ég var í 10. bekk og varð dauðhrædd. Það eru ekki margir hlutir sem hræða mig, en einhvernvegin náði Tom Waits að smjúga inn í höfuðið á mér, hrista það innanfrá og láta öll hár rísa.
Eftir það hlustaði ég ekki á hann í 3 ár en núna nýlega fann ég tengil að öllum diskunum hans ókeypis á netinu (úr síðustu færslu) og stóðst ekki freistinguna að gefa honum annað tækifæri. Núna er ég að hlusta á Bone Machine og það liggur við að mig langi að gráta af ótta við þennan mann.
Af hverju kýstu að hljóma svona, Tom? Af hverju?
Saturday, October 27, 2007
Nú þar sem búið er að taka niður Oink deilisíðuna (Frétt um það á BBC news) verða hundruðir þúsunda manna, þar á meðal ég, að finna sér aðra leið til ná í tónlist á netinu.Í dag er ég búin að vera að leita að staðgengli og þá hefur minn eigin bakgarður staðið sig best en það er tónlistarhluti atease forumsins. Þar er heill hellingur af fólki sem hleður upp allri sinni tónlist og jafnvel heilu diskógrafíunum af sérstökum listamönnum.
Hér eru nokkrar síður sem ég fékk tengil að (allt þetta eru ókeypis síður sem krefjast einskis lykilorðs):
Hellingur af geisladiskum, flestir nýlegir
http://lastbench.livejournal.com/689.html
Allt með Aphex Twin
http://www.lolupload.com/~trill/mp3/Aphex%20Twin/
B-hliðar og smáskífur með My Morning Jacket
http://nodatta.blogspot.com/search?q=Morning+Jacket
(til að opna rar skrárnar þarf reyndar lykilorð en það er gefið upp á síðunni)
Allt með Tom Waits
http://phobos.cs.msu.su/local/TW/Sound/
Allt með Sonic Youth
http://sonic-youth.blogspot.com/
(sama gildir hér og með My Morning Jacket)
Allt með Joy Division
http://www.mcr.ru/jd/music001/
Hellingur (m.a. allt með Neil Young, og úrval af King Crimson, Captain Beefheart, Brian Eno og Bob Dylan)
http://elcamaleongalegobrasileiro.blogspot.com/
Iron & Wine
http://www.passingafternoon.com/collection/MP3/
Allt með M.I.A.
http://www.4shared.com/dir/1939916/5864ea5e/sharing.html
Ýmist (aðallega danstónlist og remix)
http://dmdevocion.multiply.com/music
Ýmsir diskar (sumir tenglarnir gætu verið útrunnir)
http://the-roadhouse-viander.blogspot.com/
Höfundar eins vinsælasta lags seinni hluta tíunda áratugarins „Why Does it Always Rain on Me?” sem einu sinni voru stærri en Coldplay, eru snúnir aftur með sína fimmtu breiðskífu, The boy with No Name.
Skosku fjórmenningarnir í Travis gáfu út fyrstu breiðskífu sína árið 1997, Good Feeling. Hún var mun rokkaðri en eftirfarar hennar en náði ekki að koma þeim á kortið þrátt fyrir prýðis lagasmíðar. Það gerði önnur plata þeirra, The Man Who, hins vegar. Fyrir hana hlutu þeir heimsfrægð og varð The Man Who skyldueign allra helstu britpop aðdáenda. Skífan sem fylgdi á eftir, The Invisible Band, var eins og tvíburasystkini fyrrvera hennar og ýtti aðeins undir velgengni Travis.
En 12 Memories fékk ekki jafn góðar viðtökur og hún átti skilið og Travis virðast hafa tekið stóra u-beygju með nýju plötunni, The Boy with No Name, og snúið aftur að útvarpsvænni, melódískari lögum líkt og þeim sem finnast á þeirra eldri plötum.
Flest lögin eru heldur róleg og gítardrifin þó það sé eitt og eitt kraftmeira inn á milli, eins og „Selfish Jean” sem er áhugaverð tilraun til að rokka hressilega, eitthvað sem Travis hafa ekki gert mikið af frá Good Feeling dögunum, en það vekur upp vandræðalegheit líkt og mæður sem ganga í fötum af dætrum sínum eða Paul McCartney að syngja „Helter Skelter”. Travis eru búnir að velja sína hillu sem passar vel og kraftmikil tónlist á ekki heima þar. Eitt besta lag plötunnar er hins vegar „Big Chair”. Melankólískt andrúmsloft þess og heimsspekilegur textinn, umvafið grípandi bassalínu og svífandi falsettu, gerir það eftirminnilegra en flest hin. „Battleships” er einnig áhugavert á þann hátt að er týpískt fyrir Fran Healy, söngvara sveitarinnar. Það er hreinskilið um ástarsamband hans og kærustunar. Healy er vanur að skrifa mjög hreinskilna texta, ósjaldan tekna nær beint úr dagbókinni hans. Þessir opnu textar eru eitt það elskulegasta við Travis og gerir þá innilegri en margar aðrar hljómsveitir.
The Boy with No Name er ekki frumleg og í raun ekki mikið meira en týndi þríburi The Man who og The Invisible Band en samt sem áður er þetta góð plata sem stendur fyrir sínu. Það er bara spurning hvort þeir ákveða næst að breyta til eða halda áfram að vera gamli, kunnuglegi fjölkylduhundurinn sem hlýjar þér um fæturna á meðan þú situr í stofunni, reykjandi pípu, lesandi gamlar klassískar bókmenntir.
3,5/5
Hildur María Friðriksdóttir
Friday, October 26, 2007

Fjölmiðlafárið í kringum Planet Earth hefur verið gífurlega mikið enda spilaði Prince í hálfleik Super Bowl úrslitaleiksins árið 2007 ásamt því að gefa ókeypis eintak af plötunni með hverjum tónleikamiða Planet Earth tónleikaferðarinnar. Það vakti einnig mikla athygli að áður en diskurinn kom nokkurs staðar í sölu var honum dreift án aukakostnaðar með breska dagblaðinu The Daily Mail sem var nokkurskonar áróður gegn minnkandi plötusölu á heimsvísu. Ekki er það nóg heldur fylgdi hann í fótspor margra stórmenna með því að gefa út sína eigin ilmvatnslínu.
Athyglin sem Planet Earth hefur vakið á sér hefur komið fram í gegnum hinar ýmsu kynningarherferðir en minna vegna tónlistarinnar. Ástæðan kann að vera áberandi persónuleiki Prince eða einfaldlega slæm gæði plötunnar. Hún er eitthvað sem aðeins hörðustu aðdáendur geta verið sælir með en lögin eru varla yfir meðallagi.
Þrjú lög vekja helst athygli og þau eru fyrsta smáskífan, „Guitar”, hress, gítardrifin rokkballaða tileinkuð uppáhaldshljóðfæri Prince, „Mr. Goodnight”, ljúf og tælandi getnaðartónlist og „Chelsea Rodgers”, tært fönklag með sterkri bassalínu, kvenrödd og blásturssveit. Restin er vægast sagt sorgleg og dauð. Svo virðist sem maðurinn sé orðinn útþynntur. Hann mætti eyða meiri tíma í gerð laganna, gera þau heilsteyptari og reyna að fá fólkið til að langa til að hlusta á diskinn frekar en að stilla honum upp í hillusamstæðuna, hugsandi „Nú fékk ég sko frábæran díl” þar sem hann safnar svo ryki í 8 ár áður en hann verður svo seldur á bílskúrssölu, enn innpakkaður í glansandi plastumbúðir.
Prince þarf að bjóða kynningarfulltrúunum sínum í tebolla og spyrja þá ráða því ef hann hagaði sér gagnvart tónlistargerð líkt og fulltrúarnir vinna hörðum höndum í að kynna hann hætti hann að vera Prince og yrði krýndur kóngur.

