Ef þú getur giskað með hvaða hljómsveit lagið sem titillinn er byggður á, á ég sleikjó ekki ósvipaðan þessum handa þér:

Annars er klukkan hálf fjögur að nóttu. Ég gæti alveg sofnað ef mig langaði til þess en það er bara einum of þægilegt að hlusta á tónlist og gera eitthvað jafntilgangslaust og spila kapal eða skoða message board og hversu vandræðalegt Johnny Depp fannst að kyssa Keira Knightley á mbl.is.
Nýasta tónlistin á playlistanum mínum er LCD Soundsystem. Sveitin hefur gefið úr nokkrar smáskífur og þá helst má nefna Daft Punk is Playing at My House. Nýi diskurinn heitir svo ekki verra nafni en The Sound of Silver. Þetta er mjög svipuð tónlist og Hot Chip hafa verið að gera, svona létt, elektró-poppuð danstónlist.
LCD Soudsystem eiga eftir að koma fram á Pukkelpop (beinþýtt: melludólgspopp) þetta árið sem er Belgíska festivalið sem ég fór á í fyrra. Þá fannst mér line-upið fullkomið og það lítur út fyrir að það verði alls ekki verra í ár. Lokalistinn yfir sveitirnar sem spila þarna hefur ekki verið staðfestur en hingað til langar mig hreint og beint að sjá allar sveitirnar sem skráðar hafa verið. Þ.á.m eru:

Smashing Pumpkins, Tool, Nine Inch Nails, The Arcade Fire, Basement Jaxx, Iggy and The Stooges, The Streets, Kings of Leon, The Hives, MIA, Dizzee Rascal, Eagles of Death Metal, Cocorosie, Low, Juliette & The Licks, Badly Drawn Boy, Trentemöller, Architecture in Helsinki, I'm From Barcelona
og hellingur af öðru efni. Þetta eru þær sveitir sem ég hef mestan áhuga á en allt line-upið sem er komið hingað til er hér.
Held ég dragi (allavega) Írisi memm. Það væri gaman að gera þetta að árlegri heimsókn, svo lengi sem hljómsveitirnar eru nógu góðar.og hellingur af öðru efni. Þetta eru þær sveitir sem ég hef mestan áhuga á en allt line-upið sem er komið hingað til er hér.