skip to main |
skip to sidebar
Ef einhver internet notandi skyldi villast á þetta væri kannski viturlegast að koma með smá upprifjun úr lífi mínu (aka. frequently asked questions): - Já, ég hlusta ennþá óþægilega mikið á Radiohead - en hey, ég hlusta sjúklega mikið á aðra tónlist líka.
- Ég er ekki með bílpróf - Þá er það komið á hreint! EKKI SPYRJA MIG AF HVERJU! Ein leiðinlegasta spurning sem ég fæ.
- Er í borgarholtsskóla á náttúrufræðibraut - Tímarnir í Borgarholtsskóla eru tvöfalt lengri en tímarnir í MH, efnið virðist vera svipað mikið, oftast jafnvel minna, fólkið er mestallt hnakkar og leiðindapúkar (ekki sama tegund af leiðindapúka og ég samt. Það væri fínt), skólinn er langt í burtu og kennararnir á náttúrufræðibraut eru hryllingur. Af hverju skipti ég yfir í Borgó, segirðu? Já takk, þetta er önnur leiðinlegasta spurningin sem ég fæ en samt aðeins réttlárari. Ég skipti yfir í Borgó því mig hefur alltaf langað að stinga annarri tánni í þetta listræna. Kvikmyndagerð og annars konar list. Sem betur fer hef ég tekið einn listnámsáfanga á önn í Borgó sem bætir upp allt þetta vesen, rugl og leiðindi sem ég fæ annars þarna.
No comments:
Post a Comment