Thursday, May 17, 2007

Mér er rosalega kalt.

Í morgun vaknaði ég, nýbúin með síðasta lokaprófið með eina mestu eyrðarleysistilfinningu sem ég man eftir. Hvað á ég að gera núna?
  • Finna mér vinnu?
  • Taka til í herberginu mínu?
  • Senda öll þessi blessuðu bréf sem liggja bara á skrifborðinu mínu (já, það er smá pláss á skrifborðinu mínu á milli prentarans og sjónvarpsins), bíðandi eftir að ég rétt svo stingi þeim í umslag og afhendi pósthússtarfsmanninum með tilþrifum?
Ég gæti verið eyrðarlaus en guð, hvað ég nenni þessu ekki.
Kannski á morgun?

No comments: