Thursday, May 08, 2008

Ég var að skrifa bloggpóst á http://hildurinwonderland.blogspot.com/ fyrr í nótt, sem er síða sérstaklega ætluð handa vinum og fjölskyldu á meðan ég verð á Englandi í sumar. Svo var mér hugsað til þessa bloggs, vitund103. Handa hverjum er það? Hver er markhópur þessa bloggs? Hver nennir að lesa það og hvað ætti ég að tala um fyrir þá manneskju?
Sannleikurinn er að þetta blogg er ekki fyrir neinn annan en mig.

Núna t.d. langar mig að skrifa um prófin, vinnuna og fólkið sem ég rekst á þar, hljómsveitirnar R.E.M. og Foo Fighters og hvernig þær eru að snúa aftur til gamla rokkívafsins þeirra, Radiohead, Pukkelpop og GTA allt í einni færslu. Það er ekki ein sála sem ég þekki sem hefði áhuga á að lesa alla þessa parta þannig að einfaldlega, eins og ég sagði, er þetta blogg ekki fyrir neinn annan en mig.
Fólki er ekki bannað að lesa það en því á vafalaust eftir að leiðast það sem í því stendur. Hér skrifa ég það sem mig langar að tala um og líklegast verð að skrifa hér þar sem enginn nennir að hlusta á mig segja það upphátt.

1 comment:

Anonymous said...
This comment has been removed by a blog administrator.